Fara beint í efni

Lokað beta í gangi/

Frí auglýsingaúttekt

Við skoðum síðustu 30 daga og segjum þér hvað fór til spillis

Þetta er ekki sölukynning í dulargervi. Þú færð sömu greiningu og viðskiptavinir okkar fá í mælaborðinu, unna á þínum eigin gögnum, senda sem skjal. Ef þú vilt svo ekkert með Metric hafa er það fullkomlega í lagi — þú heldur skýrslunni.

  1. 01Þú fyllir út formið2 mínútur
  2. 02Þú veitir lesaðgang10 mínútur
  3. 03Við sendum skýrsluna2 virkir dagar

Hvað þú færð

  • Raunverulegt MER, ROAS og CAC

    Leiðrétt fyrir tvítalningu milli miðla og staðfest gegn pöntunum í sölukerfinu þínu.

  • Herferðir undir núllpunkti

    Nafngreindur listi með krónutölu á hverri einustu herferð sem borgaði sig ekki síðustu 30 daga.

  • Rakningargloppur

    Hvaða hluti sölunnar skilar sér alls ekki í mælingar — og hvað það þýðir fyrir ákvarðanirnar sem þú tekur.

  • Þrjár aðgerðir í forgangsröð

    Það sem við myndum laga fyrst, annað og þriðja. Skrifað þannig að þú getir framkvæmt það sjálf eða sjálfur.

Hverju þú ert að deila

Við biðjum um

  • Lesaðgang að Meta Ads reikningnum
  • Lesaðgang að Google Ads reikningnum
  • Lesaðgang að pöntunum í Shopify eða WooCommerce

Við biðjum aldrei um

  • Lykilorð — aldrei, undir engum kringumstæðum
  • Skrifaðgang að herferðum eða vefverslun
  • Aðgang að bankareikningi eða greiðslukortum
  • Leyfi til að hafa samband við viðskiptavini þína

Þú aftengir aðganginn í einum smelli þegar þú vilt. Afritum af gögnunum þínum er eytt innan 30 daga frá því að úttektinni lýkur, hvort sem þú verður viðskiptavinur eða ekki.

Sæktu um úttekt

Við tökum við takmörkuðum fjölda úttekta í hverri viku svo að hver og ein sé unnin af manneskju.

Hvaða kerfi notar þú?

Engin skuldbinding·Lesaðgangur einn og sér

Á meðan þú bíður

Reiknaðu núllpunktinn þinn strax

Grófa útgáfan af sömu greiningu, reiknuð í vafranum þínum úr þremur tölum. Ekkert sent neitt.

Þínar tölur

Gróf mæling úr þremur tölum sem þú veist utanbókar.

á mánuði

Nettósala eftir að endurgreiðslur og skil hafa verið dregin frá.

á mánuði

Allir miðlar samanlagt: Meta, Google, TikTok og aðrir.

48%

Hvað stendur eftir af hverri seldri krónu þegar innkaupsverð, sending og færslugjöld hafa verið dregin frá — en áður en auglýsingar eru taldar með.

Núllpunkturinn þinn

Undir þessum MER tapar hver auglýsingakróna peningum, sama hvað Meta segir.

7,5×
MER þinn
6,25×
Núllpunktur
2,08×
Framlegð eftir markaðskostnað
2.400.000 kr.
Öryggisbil
3,0× yfir núllpunkti

Markaðsstarfið borgar sig á heildina litið. Þú mátt eyða allt að 3.600.000 kr. á mánuði áður en framlegðin fer í núll. Spurningin er hvaða herferðir innan þeirrar tölu eru að éta afganginn.

Þetta er meðaltal yfir allan reksturinn. Frí úttekt sundurliðar sömu reikninga niður á hverja einustu herferð úr þínum eigin gögnum.

Fáðu sundurliðaða úttekt